Jakob Héðinn skaut Völsungum áframÍþróttir - - Lestrar 250
Jakob Héðinn Róbertsson skaut Völsungum áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikarsins í kvöld þegar Leiknir F kom í heimsókn.
Leikurinn var markalaus allt þar til á 85. mínútu, en þá komust Leiknismenn yfir með marki Björgvins Stefáns Péturssonar.
Sú forysta stóð ekki lengi því Sæþór Olgeirsson jafnaði metin fyrir Völsung þremur mínútum síðar og venjulegum leiktíma lauk 1-1.
Þá var gripið til framlengingar og komið að þætti Jakobs Héðins því hann skoraði sigurmark leiksins á 103. mínútu og lokatölur því 2-1 fyrir Völsungi.
Jakob Héðinn varð sextán ára gamall síðasta laugardag og þetta mark það fyrsta sem hann skorar í mótsleik með meistaraflokki Völsungs.
Jakob Héðinn skorar hér sigurmarkið og Sæþór Olgeirsson fylgist vel með frænda sínum.