17. júl
Jakob Gunnar í KRÍþróttir - - Lestrar 164
Jakob Gunnar Sigurðsson leikmaður Völsungs hefur gengið til liðs við Bestudeildarlið KR.
Frá þessu segir á Fésbókarsíðu Græna hersins í dag:
Jakob, borinn og barnsfæddur Húsvíkingur og Völsungur, er fæddur árið 2007 og á að baki 34 leiki með meistaraflokki Völsungs og hefur skorað 13 mörk í þeim. Jakob hefur sannarlega sprungið út hjá okkur í sumar og vakið mikla eftirtekt, enda með 11 mörk í 12 deildarleikjum.
Jakob gerir 3ja ára samning við KR en mun klára leiktímabilið með okkur í Völsungi á láni.
Þetta eru magnaðar fréttir og mikil viðurkenning fyrir Jakob, fjölskyldu hans og félagið Völsung. Okkar ungu mönnum eru allir vegir færir og óskum við Jakobi frábæru gengi suður með sjó, framtíðin er sannarlega hans.
Hér má lesa yfirlýsingu á heimasíðu KR:
Jakob Gunnar Sigurðsson (2007) hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR, út keppnistímabilið 2027.
Jakob er mjög efnilegur framherji sem kemur frá Húsavík. Hann hefur spilað 43 meistaraflokksleiki fyrir Völsung og skorað 14 mörk. Í sumar hefur hann spilað 12 leiki fyrir Völsung og skorað í þeim 11 mörk. Hann hefur einnig spilað 6 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Jakob klárar tímabilið fyrir norðan og kemur svo í Vesturbæinn eftir tímabil.
Við erum mjög stolt að KR varð fyrir valinu og hlökkum til að sjá hann blómstra í KR treyjunni.

Jakob Gunnar í KR treyjunni.
Mynd KR.is