Jafntefli í grannaslag við MagnaÍþróttir - - Lestrar 131
Völsungar fengu Magna frá Grenivík í heimsókn á PCC völlinn í gærkveldi.
Baldur Sigurðsson, fyrirliði Völsungs, kom lþeim grænu yfir á sjöttu mínútu leiksins en Kristófer Óskar Óskarsson jafnaði metin fyrir Magna á 28. mínútu. 1-1 í hálfleik.
Markaskorarinn Áki Sölvason kom svo heimamönnum yfir á nýjan leik á 66. mínútu áður en Tómas Örn Arnarson jafnaði metin eftir hornspyrnu á fimmtu mínútu uppbótartíma.
Völsungur er áfram í fjórða sæti 2. deildar karla, sjö stigum frá Þrótti úr Reykjavík í öðru sætinu. Magni er áfram í fallsæti en jafnar Hött/Hugin að stigum með sex stig.
Baldur skorar fyrsta mark leiksins.
Barátta í teignum.
Völsungar fagna marki Áka.
Með því að smella á myndirnar er hægt að fletta þeim og skoða í hærri upplausn.