23. apr
Jafntefli hjá stelpunumÍþróttir - - Lestrar 542
Völsungur gerði jafntefli við Hamrana í toppslag riðils 3 í C-deild Lengjubikars kvenna.
Leikið var á gervigrasvellinum á Húsavík í kvöld.
Emilía Eir Pálsdóttir kom Hömrunum yfir í fyrri hálfleik en Marta Sóley Sigmarsdóttir jafnaði úr vítaspyrnu í síðari hálfleik.
Hamrarnir ljúka því riðlakeppninni á toppnum með tíu stig. Völsungur endar í öðru sæti, með átta stig. (fotbolti.net)