08. sep
Arnar varð Íslandsmeistari á HúsavíkÍþróttir - - Lestrar 235
Íslandsmeistaramótið í Bench Rest Skor riffli fór fram á velli Skot-félags Húsavíkur um helgina.
Skotið var á 100 og 200 metra færi, 25 skot á hvort færi. Íslandsmeistari varð Arnar Oddsson úr Skotfélagi Akureyrar með 495 stig og 25 X-tíur.
Jóhannes Frank Jóhannesson úr Skotdeild Keflavíkur varð annar með 494 stig og 15 X-tíur og þriðji varð Kristján Arnarson úr Skotfélagi Húsavíkur með 492 stig og 27 X-tíur.
Nánar á úrslitasíðu STÍ.