Hulda Ósk valin í U17 hópinn sem fer til SlóveníuÍþróttir - - Lestrar 585
Úlfar Hinriksson, þjálfari U17 landsliðs kvenna, hefur valið hóp átján leikmanna fyrir undankeppni EM 2013. Völsungur á einn
fulltrúa í hópnum en Hulda Ósk Jónsdóttir var valin í verkefnið.
Riðill Íslands fer fram í Slóveníu í byrjun september og er Ísland í riðli með Slóveníu, Tékklandi og
Eistlandi. Leikmennirnir í hópnum koma frá 12 félögum víðs vegar af landinu og er Hulda Ósk vel að þessu komin en hún hefur
spilað frábærlega í sumar bæði með 3.flokki sem og meistaraflokki kvenna. Hulda skoraði 20 mörk í 12 leikjum fyrir 3.flokk í sumar og
á framtíðina fyrir sér.
Græni herinn & 640.is senda Huldu Ósk hamingjuóskir
Hópurinn sem fer til Slóveníu.