Hrund Ásgeirsdóttir verđur skólastjóri í Lundi og á RaufarhöfnAlmennt - - Lestrar 273
Breytingar verđa í grunnskólum Norđurţings hvađ varđar skólastjóra á nćsta skólaári.
Á heimasíđu Norđurţings segir ađ Guđrún S. Kristjánsdóttir skólastjóri Öxarfjarđarskóla hafi ákveđiđ ađ láta af störfum ađ loknu yfirstandandi skólaári.
Guđrún hefur alla tíđ af mikilli eljusemi og umhyggju fyrir nemendum, menntamálum og sínu samfélagi leitast viđ ađ tryggja starfsemi Öxarfjarđarskóla sem bestan farveg. Er Guđrúnu ţakkađ fyrir áralangt og óeigingjarnt starf sitt, fyrst sem kennari og frá árinu 2008 sem skólastjóri.
Hrund Ásgeirsdóttur hefur veriđ ráđin sem skólastjóra bćđi Öxarfjarđarskóla og Grunnskóla Raufarhafnar tímabundiđ skólaáriđ 2021-2022 međ möguleika á framlengingu um eitt ár. Hrund mun hefja störf sem skólastjóri beggja skóla 1. ágúst.
Hrund lauk kennaraprófi frá Kennaraháskóla Íslands áriđ 2005 og Diplómu í stjórnun frá menntavísindasviđi HA áriđ 2018. Hrund hefur starfađ sem kennari frá árinu 1998 og var á árunum 2008– 2019 ađstođarskólastjóri í Öxarfjarđarskóla. Hrund hefur starfađ sem skólastjóri Grunnskóla Raufarhafnar frá 2019.
Ţórgunnur R. Vigfúsdóttir skólastjóri Borgarhólsskóla mun verđa í námsleyfi skólaáriđ 2021 – 2022. Í fjarveru hennar mun Kolbrún Ada Gunnarsdóttir deildarstjóri í Borgarhólsskóla leysa Ţórgunni af og gegna stöđu skólastjóra.