02. feb
Hringvegur lokaður við Jökulsá á Fjöllum.Almennt - - Lestrar 86
Hringveginum hefur verið lokað við Jökulsá á Fjöllum vegna aukinnar óvissu og upplýsinga frá vísindamönnum um einhverjar breytingar á hegðun árinnar.
Í tilkynningu frá Lögeglunni á Norðurlandi eystra segir að lokunarpóstar séu við Kröflu-afleggjara að vestan og vestan við Vopnafjarðarafleggjara að austan.
Allri umferð um Mývatnssöræfi er því beint um norðausturströndina, Húsavík, Þórshöfn og Vopnafjörð.
Ekkert verður ákveðið með opnun vegarins í bráð.