23. júl
Hlöðuballinu aflýstAlmennt - - Lestrar 134
Hlöðuballi Mærudaga sem fram átti að fara í Reiðhöllinni við Húsavík um helgina hefur verið aflýst.
Þetta kemur fram í tilkynningu Hestamannafélagsins Grana.
„Aðstæður og óvissa í samfélaginu gerir það að verkum að þetta er niðurstaðan,“ segir í tilkynningunni.
Formaður Grana hvetur fólk „til að hafa gaman af lífinu og reyna eftir fremsta megni að njóta helgarinnar,“ segir í tilkynningunni.
„Við reynum aftur að ári,“ segir enn fremur.