20. okt
Heiltónn heldur sinn fyrsta félagsfundAlmennt - - Lestrar 119
Heiltónn, hollvinasamtök Tónlistarskóla Húsavíkur, heldur sinn fyrsta almenna félagsfund þriðjudaginn 20. október kl. 17:00 í Borgarhólsskóla.
Dagskrá fundarins verður kynning á samtökunum, kosning stjórnar, umræða um vetrarstarfið og verkefni framundan.
Allt áhugafólk um öflugt tónlistarlíf og velunnarar Tónlistaskóla Húsavíkur eru hvattir til að mæta.