10. ágú
Haraldur Ingi leiðir lista Sósíalista í NAFréttatilkynning - - Lestrar 144
Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri Listasafnsins á Akureyri, leiðir lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi. Margrét Pétursdóttir er í öðru sæti og Guðrún Þórsdóttir í þriðja sæti.
Í tilkynningu frá Sósíalistaflokknum segir að listanum hafi verið stillt upp af slembivöldum hópi meðal félaga flokksins sem unnið hefur hörðum höndum að því að endurspegla sem skýrast vilja grasrótar flokksins.
„Það er kominn tími á róttæka vinstristefnu sem hefur skýra framtíðarsýn og hafnar stöðugum málamiðlunum til hægri. Málamiðlanirnar hafa engu skilað nema afturför, síauknum ójöfnuði og auðsöfnun lítils hluta þjóðarinnar.
Skattahækkanir á bótaþega og almennt launafólk, sligandi húsnæðis- og leigumarkaður og níðþungur fjármagnskostnaður og fjármálakerfi leggja þungar byrðar á þjóðina en soga hins vegar gríðarlegan arð til fjármagnseigenda og stórfyrirtækja,“ segir Haraldur Ingi Haraldsson m.a í tilkynningunni sem lesa má í heild sinni hér.
Listi Sósíalistaflokks Íslands í Norðausturkjördæmi:
- Haraldur Ingi Haraldsson, verkefnastjóri
- Margrét Pétursdóttir, verkakona
- Guðrún Þórsdóttir, menningarstjóri og ráðgjafi
- Þorsteinn Bergsson, dýraeftirlitsmaður og fyrrverandi bóndi
- Unnur María Máney Bergsveinsdóttir, sirkuslistakona og sagnfræðingur
- Auður Traustadóttir, sjúkraliði
- Rúnar Freyr Júlíusson, námsmaður
- Karolina Sigurðardóttir, verkakona
- Bergrún Andradóttir, námsmaður
- Brynja Siguróladóttir, öryrki
- Stefán L. Rögnvaldsson, bóndi og raunsæisskáld
- Kolbeinn Agnarsson, sjómaður
- Halldóra Hafdísardóttir, myndlistarmaður
- Arinbjörn Árnason, fv. bóndi og bifreiðarstjóri
- Ari Sigurjónsson, sjómaður
- Árni Daníel Júlíusson, sagnfræðingur
- Michal Polacek, lögfræðingur
- Katrín María Ipaz, þjónn
- Skúli Skúlason, leiðbeinandi
- Jóhann Axelsson, prófesssor emeritus