29. ágú
Hafrún nýr íþrótta- og tómstundafulltrúi NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 297
Hafrún Olgeirsdóttir hefur verið ráðin í stöðu íþrótta- og tómstundafulltrúa Norðurþings.
Hafrún lauk mastersnámi í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2016.
Fram kemur í fréttatilkynningu að Hafrún hefur verið aðalmaður í sveitarstjórn Norðurþings frá 2019 og er núverandi formaður byggðaráðs auk þess sem hún sat um tíma í fjölskylduráði.
Hafrún hefur í gegnum menntun sína og setu í sveitarstjórn og nefndum sveitarfélagsins öðlast umtalsverða reynslu og þekkingu á opinberri stjórnsýslu og íþrótta- og tómstundamálum í sveitarfélaginu.
Hafrún mun hefja störf nú á haustmánuðum.