04. okt
Hættustig enn í gildi í KinniniAlmennt - - Lestrar 259
Rýmingu hefur ekki verið aflétt í Kinn og Útkinn en í nótt féllu skriður í Útkinn og er hættustig enn í gildi á svæðinu.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra en spáð er töluverðri úrkomu í dag og til miðnættis.
Vegurinn um Kinn er enn lokaður fyrir almennri umferð. Verið er að afla upplýsinga um stöðuna, mynda fjallshlíðar og leggja mat á vatnsmagn og hættu á skriðuföllum.
Næsti stöðufundur með sérfræðingum veðurstofunnar verður haldinn í lok dags.