Guðrún Kristinsdóttir nýr formaður VölsungsAlmennt - - Lestrar 467
Formannsskipti urðu hjá Íþróttafélaginu Völsungi á aðalfundi þess sem fram fór nú í vikunni. Linda M. Baldursdóttir formaður til 11 ára gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var Guðrún Kristinsdóttir kjörinn nýr formaður Völsungs.
Góð mæting var á fundinn miðað við síðustu ár, en á þriðja tug Völsunga tók þátt í líflegum og skemmtilegum umræðum á fundinum þar sem gert var grein fyrir stafsemi félagsins og ársreikningum fyrir síðasta starfsár. Almenn ánægja kom fram með fjárhagslega stöðu félagsins en samkvæmt ársreikningum aðalsjóðs Völsungs varð 5,5 milljón króna hagnaður af starfseminni.
Ný aðalstjórn ásamt framkvæmdastjóra Sveini Aðalsteinssyni. Guðrún Kristinsdóttir, Þóra Kristín Jónasdóttir, Elín M. Gunnsteinsdóttir, Már Höskuldsson og Lúðvík Kristinsson.
Í lok fundar var Lindu og fráfarandi stjórn þökkuð vel unnin störf í þágu Íþróttafélagsins Völsungs sem hefur það að markmiði að eflast enn frekar á næstu árum samfélaginu til góða. (framsyn.is)
Meðfylgjandi myndir tók Aðalsteinn Árni Baldursson.