23. sep
Grímseyingar standa þétt samanFréttatilkynning - - Lestrar 95
Grímseyingar komu saman í gærkvöldi í félagsheimili eyjarinnar.
Þar var samþykkt einróma að byggja nýja kirkju í svipaðri mynd þeirrar sem fyrir var, en brann til grunna aðfaranótt miðvikudags.
Íbúar Grímseyjar vilja koma á framfæri þakklæti til þjóðarinnar sem hefur sýnt þeim einstakan samhug og stuðning á erfiðum tímum.
Þeir sem vilja styrkja verkefnið er bent á reikning Miðgarðskirkju, 565-04-250731, kt. 4602692539