Góð aðsókn í SjóböðinAlmennt - - Lestrar 287
"Sumarið hefur farið mjög vel af stað eins og áður segir og við erum mjög bjartsýn með framhaldið. Einnig teljum við að það verði töluverð aðsókn þegar nær dregur hausti með auknu flæði erlendra ferðamanna til landsins.
Þetta á við Sjóböðin sem og aðra afþreyingu, veitingastaði og gististaði á landinu sem berjast nú við að anna þeirri eftirspurn sem er til staðar og vonandi heldur þessi traffík áfram vel inn á haustið". Sagði Ármann Örn sem tók við framkvæmdastjórastöðu Sjóbaðanna í byrjun sumars.
Vegna mikillar aðsóknar hvetja Sjóböðin gesti sína til að bóka miða á heimasíðu þeirra - www.geosea.is
Sjóböðin á Húsavíkurhöfða í kvöldsólinni um nýliðna helgi.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.