15. maí
Fyrsta skemtiferðaskipið komið, sama skip á sama tíma og í fyrraAlmennt - - Lestrar 154
Líkt og í fyrra kom fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Húsavíkur þann 15. maí.
Um er að ræða norska leiðangursskipið Fram sem var einmitt einnig fyrsta skip síðasta sumars.
Eins og áður hefur komið fram á 640.is, er skipið, sem norska fyrirtækið Hurtigruten gerir út, nefnt eftir sögufrægu skipi landkönnuðanna Fridtjof Nansen og Roald Amundsen.
Skipið siglir á norðurslóðum á sumrin og á suðurskautinu á öðrum árstímum.
Norska leiðangursskipið Fram kemur að Norðurgarðinum nú síðdegis.