04. jan
Fyrsta löndun ársins á HúsavíkAlmennt - - Lestrar 116
Línubáturinn Sólrún EA 151 kom að landi á Húsavík síðdegis í gær og landaði þar með fyrstur báta á Húsavík þetta árið.
Eins og fram kemur á mbl.is í dag hefur GPG Seafood ehf. á Húsavík keypt útgerðarfélagið Sólrúnu ehf. á Árskógssandi í Eyjafirði.
Kaupunum fylgja bátarnir Sólrún EA 151 og Særún EA 251 auk rúmlega 500 tonna kvóta, þar af um 370 tonn í þorski.
Sjá fleiri myndir á Skipamyndir.com
Sólrún kemur að í gær.