FSH brautskráði 30 nemendur

Brautskráning Framhaldsskólans á Húsavík fór fram við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju laugardaginn 25. maí síðastliðinn.

FSH brautskráði 30 nemendur
Almennt - - Lestrar 249

Andri Már Sigursveinsson.
Andri Már Sigursveinsson.

Brautskráning Framhaldsskólans á Húsavík fór fram við hátíðlega athöfn í Húsavíkurkirkju laugardaginn 25. maí síðastliðinn.

Þá brautskráðust 30 nemendur frá skólanum, einn af starfsbraut, níu af heilsunuddbraut og tuttugu af stúdentsbrautum.

Valgerður Gunnarsdóttir skólameistari stýrði athöfn, flutti ræðu, auk Halldórs Jóns Gíslasonar aðstoðarskólameistara og Rakelar Daggar Hafliðadóttur kennara og félags- og forvarnarfulltrúa.

Ræðu nýstúdenta fluttu Birta María Eiðsdóttir og Hreinn Kári Erluson.

Ljósmynd Hafþór

Nýstúdentar frá FSH í blíðskaparveðri.

Ljósmynd Hafþór

Nýútskrifaðir heilsunuddarar ásamt kennara sínum, Helgu Björgu Sigurðardóttur.

Ljósmynd Hafþór

Sigþór Orri Arnarson við útskrift.

Ljósmynd Hafþór

Dúx Framhaldsskólans á Húsavík var Andri Már Sigursveinsson.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744