Meta umhverfisáhrif vegna kísilmálmverksmiðju á BakkaAðsent efni - - Lestrar 511
Vinna er nú hafin við mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðrar byggingar á kísilmálmverksmiðju PCC SE á iðnaðarsvæðinu á Bakka á Húsavík.
PCC er alþjóðlegur hópur fyrirtækja í eigu PCC SE sem er eignarhaldsfélag með höfuðstöðvar í Duisburg í Þýskalandi. Í dag eru fyrirtæki PCC með starfsemi í 13 löndum með um 2.200 starfsmenn. Starfsemin nær yfir þrjár megingreinar: efnaframleiðslu, orkuframleiðslu og flutninga (logistics). Áætluð velta ársins 2011 er alls um 620 milljónir evra.
Meðal fyrirtækja í PCC er efnaverksmiðja í Wroclaw í Póllandi sem er ein stærsta verksmiðja sinnar tegundar í landinu, þar sem framleidd eru efni fyrir plastiðnað, húsgagnaframleiðslu og efni fyrir framleiðslu á þvotta- og hreinsiefnum. Meðal helstu framleiðsluvara PCC eru einnig kaldsvampur sem notaður er í hágæða heilsudýnur.
Á sviði orkuframleiðslu hefur PCC einbeitt sér að vinnslu á raforku úr endurnýjanlegum orkugjöfum og samvinnslu raf- og varmaorku í verkefnum í Austur- og Suðaustur-Evrópu. Þar hefur PCC einkum tekið þátt í verkefnum í verndun loftslags á Balkanskaga með byggingu smárra vatnsaflsvirkjana.
Fyrsta vatnsaflsvirkjun PCC hóf að framleiða rafmagn í febrúar 2009.
Á sviði flutninga hefur orðið aukning í umsvifum PCC í gámaflutningum í Póllandi og lestarflutningum í Rússlandi.
PCC SE hefur falið EFLU verkfræðistofu að annast mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.
Samstarfssamningur hefur verið gerður milli sveitarfélagsins Norðurþings og PCC SE um verkefnið sem felst í uppbyggingu á verksmiðju á Bakka til framleiðslugetu allt að 66.000 tonnum á ári af af kísilmálmi. Verksmiðjan verður reist í tveimur áföngum, sá fyrri verður 33.000 tonn á ári. Gert er ráð fyrir að verksmiðjan rísi á um 20 ha á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Samningaviðræður standa yfir milli fyrirtækisins og Landsvirkjunar um kaup á orku til verksmiðjunnar en heildar orkuþörf hennar verður um 52 MW í upphafi og 104 MW þegar stækkun er lokið
Áætlað er að 150 framtíðarstörf skapist við rekstur kísilmálmverksmiðjunnar að ótöldum þeim störfum sem að skapast á svæðinu vegna kaupa verksmiðjunnar á orku og þjónustu.
Frá 1. desember til 22. desember verða til kynningar drög að tillögu að matsáætlun þar sem grein er gerð fyrir framleiðslunni og áhersluþáttum mats á umhverfisáhrifum sem nú er að hefjast.
Norðurþing og PCC SE hafa boðað til opins kynningarfundar um verkefnið sem verður haldinn í Fosshóteli á Húsavík kl. 17:30 þann 13. desember.
(Fréttatilkynning)