24. jún
Framsýn - Rúmlega hálfur milljarður í atvinnuleysisbæturAlmennt - - Lestrar 58
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum fengu 444 félagsmenn innan Framsýnar greiddar kr. 579.133.508,- í atvinnuleysisbætur á síðasta ári.
Greiðslurnar koma úr Atvinnuleysistryggingasjóði.
Þetta kemur fram á heimasíðu Framsýnar en eins og kunnugt hefur atvinnuleysið á Íslandi verið í sögulegu hámarki er tengist Covid faraldrinum.
Að meðaltali hafa um 300 til 400 einstaklingar verið án atvinnu í Þingeyjarsýslum undanfarna mánuði. Því er spáð að atvinnuleysið lagist verulega þegar líður á árið.