11. mar
Framsýn lánar íbúð til flóttafólks frá ÚkraínuAlmennt - - Lestrar 78
Stjórn Framsýnar hefur ákveðið að taka eina íbúð félagsins í Reykjavík úr umferð með það að markmiði að lána hana endurgjaldslaust til flóttafólks frá Úkraínu sem á um sárt að binda og flúið hefur til Íslands í leit að öryggi.
Þá samþykkti stjórnin að opna á frekara aðgengi flóttafólks að íbúðum félagsins Reykjavík/Kópavogi þurfi þess með á þessum ömurlegu tímum.