Fræðslufundur um kannabis

Fræðslufundur verður haldinn 26.maí í sal Borgarhólsskóla og hefst hann klukkan 20:00. Fræðslufundurinn er hugsaður sem fræðsla til foreldra!   Hvers

Fræðslufundur um kannabis
Almennt - - Lestrar 48

Fræðslufundur verður haldinn 26.maí í sal Borgarhólsskóla og hefst hann klukkan 20:00.
Fræðslufundurinn er hugsaður sem fræðsla til foreldra!

 

Hvers vegna fræðsla um kannabis?
ـ Mest útbreidd notkun meðal ungs fólks á eftir áfengi.
ـ Stóraukin ræktun á kannabisplöntum á Íslandi.
ـ Skortur á umfjöllun í fjölmiðlum um skaðsemi kannabisneyslu.
ـ Sagt vera lækningalyf og tíð umræða um lögleiðingu.
ـ Fá forvarnarverkefni með áherslu á kannabis. Kannabis er mjög ávanabindandi.
ـ Víðtækur doði, rangar upplýsingar meðal ungs fólks og foreldra.

Á fundinn koma fulltrúar frá Rannsóknarlögreglunni á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Þingeyinga og Félagsþjónustu.

Eftir erindi þessara fulltrúa gefst fólki kostur á spurningum til viðkomandi aðila.

Allir hvattir til að mæta og fræðast um þessa hluti.
Velferð ungmenna okkar og barna skiptir alla máli.

 


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744