10. okt
Frá höfnum NorðurþingsAlmennt - - Lestrar 107
Nú er í gildi appelsínugul viðvörun en spáð er norðvestan og norðan 15-23 m/s í dag
Rigning eða slydda um landið norðanvert, en snjókoma á heiðum, sums staðar talsverð eða mikil úrkoma. Reiknað er með að versta veðrið gangi yfir Norðurþing í dag og standi fram yfir miðnætti í kvöld.
Í svona vindátt og hárri sjávarstöðu er hætta á verulegum óróa í Húsavíkurhöfn en háflóð er um kl. 19 í kvöld.
Búið er að hafa samband við eigendur báta og skipa og færa til í höfninni. Þá er björgunarsveitin Garðar í startholunum og tiltæk ef á þarf að halda.
Þjónustu-, útkalls- og bakvaktarsími hafnarinnar er 893-9175.