Forsnig Jarskjlftasetrinu Kpaskeri opnu.

Sast lii fimmtudagskvld var opnu forsning Jarskjlftasetrinu hsni grunnsklans Kpaskeri og mtti nokkur fjldi flks. Benedikt

Forsnig Jarskjlftasetrinu Kpaskeri opnu.
Almennt - - Lestrar 340

Jarskjlftasetri  Kpaskeri.
Jarskjlftasetri Kpaskeri.

Síðast liðið fimmtudagskvöld var opnuð forsýning á Jarðskjálftasetrinu í húsnæði grunnskólans á Kópaskeri og mætti þó nokkur fjöldi fólks. Benedikt Björgvinsson framkvæmdarstjóri og stjórnarformaður Skjálftasetursins sagði frá aðdraganda að stofnun félagsins og framtíðaráformum þess. Gestum var boðið upp á að rölta um forsýninguna þar sem bæði má sjá fullgerð sýningarspjöld og verkenfi sem eru í vinnslu.

 

Fram kemur á heimasíðu Norðurþings að síðastliðið ár hefur verið unnið að undirbúningi sýningar á myndum og efni tengdu jarðhræringunum í Öxarfirði 1975 og Kópaskersskjálftanum 1976. Sýningin er vísir að stærra verkefni, sem er stofnun Jarðskjálftaseturs á Kópaskeri. Sýningin er enn á undirbúningstigi en ákveðið hefur verið að opna forsýningu í sumar. Tilgangurinn er að kynna heimamönnum og gestum starfið sem hefur átt sér stað fram til þessa, verkefnin framundan og framtíðarsýn Skjálftafélagsins.

Benedikt Björgvinsson.

Á heimasíðu  Jóns Skúla Skúlasonar er hægt að sjá fleiri myndir frá opnuninni en hann tók meðfylgjandi myndir.

 

 


  • Herna

640.is | byrgarmaur Hafr Hreiarsson | vefstjori@640.is | Smi: 895-6744