Flugsamgöngur til umræðu á Húsavík í gær

Forsvarsmenn Flugfélagsins Ernis hafa fundað stíft með heimamönnum hér norðan heiða í gær.

Flugsamgöngur til umræðu á Húsavík í gær
Almennt - - Lestrar 67

Forsvarsmenn Flugfélagsins Ernis hafa fundað stíft með heima-mönnum hér norðan heiða í gær.

Fundað var með fulltrúum Framsýnar, Norðurþings, Þingeyjarsveitar, Húsavíkurstofu og Mývatnsstofu. Auk þess sem aðilar á svæðinu sem koma að byggða- og atvinnumálum voru kallaðir til enda um mikið hagsmunamál að ræða.

Mikil vilji er til þess meðal heimamanna að tryggja flug til Húsavíkur í sessi með aðkomu stjórnvalda og í góðu samstarfi við Flugfélagið Erni.

Áfram verður unnið að málinu á næstu vikum og mánuðum enda verulega mikill þrýstingur meðal Þingeyinga að áætlunarfluginu verði fram haldið eftir áramótin. Kallað hefur verið eftir stuðningi frá ríkinu og þá hefur verið skorað á þingmenn kjördæmisins að koma að málinu með beinum hætti. (framsyn.is)


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744