Flugeldasýning í boði Kiwanisklúbbsins SkjálfandaAðsent efni - - Lestrar 761
Í kvöld,miðvikudagskvöldið 28. desember, verða „Kertaljósatónleikar SOS og gesta“ á Fosshótel Húsavík kl. 21:00.
Notaleg kvöldstund með fjölbreyttri dagskrá.
Fyrir tónleikana á tímabilinu 20:30-20:50 ætla félagar úr Kiwanisklúbbnum Skjálfanda að vera með glæsilega flugeldasýningu fyrir utan Fosshótel, eða nánar tiltekið á bílaplaninu norðan við Borgarhólsskóla.
Flugeldasýningar Skjálfanda eru einstakar undir öruggri stjórn Inga Sveinbjörns.
Sýningu þessari er ætlað að minna á flugeldasölu Kiwanis sem fram fer næstu daga í húsi Gámaþjónustu Norðurlands úti á Höfða.
Allur ágóði af sölunni fer til líknarmála og Björgunarsveitarinnar Garðars á Húsavík. Stærsta verkefni klúbbsins á þessu starfsári er að aðstoða björgunarsveitina við að endurnýja björgunarbátinn Jón Kjartansson.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi. (Fréttatilkynning)