Fjölmennur íbúafundur í SkúlagarðiAlmennt - - Lestrar 94
Í gær var haldinn fjölmennur íbúafundur í Skúlagarði til að fara yfir áhrif sem gætu fylgt eldgosi í Vatnajökli/Bárðarbungu ef flóð færi af stað niður Jökulsá á Fjöllum.
Bergur Einarsson frá Veðurstofu Íslands og Hreiðar Hreiðarsson frá LSNE héldu framsögu, annarsvegar um niðurstöðu flóðaútreikninga og hins vegar um gildandi viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu. Í framhaldinu voru samtöl og fyrirspurnir.
Frá fundinum segir á heimasíðu Norðurþings og fylgja gögn sem kynnt voru á fundinum hér með fréttinni.
Íbúar sem ekki komust á fundinn eru hvattir til að kynna sér þau.
Viðbragðsáætlun Norðurland
Hættumat vegna jökulhlaupa í Jökulsá á Fjöllum eða Skjálfandafljóti af völdum eldgoss í Bárðarbungu.