Fjölmennur íbúafundur í Skúlagarði

Í gær var haldinn fjölmennur íbúafundur í Skúlagarði til að fara yfir áhrif sem gætu fylgt eldgosi í Vatnajökli/Bárðarbungu ef flóð færi af stað niður

Fjölmennur íbúafundur í Skúlagarði
Almennt - - Lestrar 93

Frá fundinum í Skúlagarði. Lj. Norðurþing
Frá fundinum í Skúlagarði. Lj. Norðurþing

Í gær var haldinn fjölmennur íbúafundur í Skúlagarði til að fara yfir áhrif sem gætu fylgt eldgosi í Vatnajökli/Bárðarbungu ef flóð færi af stað niður Jökulsá á Fjöllum.

Bergur Einarsson frá Veðurstofu Íslands og Hreiðar Hreiðarsson frá LSNE héldu framsögu, annarsvegar um niðurstöðu flóðaútreikninga og hins vegar um gildandi viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Bárðarbungu. Í framhaldinu voru samtöl og fyrirspurnir.

Frá fundinum segir á heimasíðu Norðurþings og fylgja gögn sem kynnt voru á fundinum hér með fréttinni.

Íbúar sem ekki komust á fundinn eru hvattir til að kynna sér þau.

Viðbragðsáætlun Norðurland

Hættumat vegna jökulhlaupa í Jökulsá á Fjöllum eða Skjálfandafljóti af völdum eldgoss í Bárðarbungu.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744