Fjölmenn og glæsileg hátíð stéttarfélagannaAlmennt - - Lestrar 1000
Tæplega 800 manns komu saman í dag á hátíðarhöldum stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum.
Hátíðin fór fram í Íþróttahöllinni og dagskráin að venju glæsileg enda boðið upp á landsþekkta skemmtikrafta eins og Siggu Beinteins, Grétar Örvars og Selmu Björns.
Hátíðin hófst með ávarpi formanns Framsýnar, Aðalsteins Árna Baldurssonar. Í ávarpinu kom Aðalsteinn inn á atvinnulífið í Þingeyjarsýslum og þau sóknartækifæri sem þar leynast verði rétt haldið á málum. Talaði hann um að Þingeyjarsýslurnar væru heitasta vaxtasvæðið í dag. Þá sá hann einnig ástæðu til að hvetja Þingeyinga til meiri samstöðu og bjartsýni.
Aðalræðumaður dagsins var Drífa Snædal framkvæmdastjóri Starfsgreinasambands Íslands. Drífa kom víða við í ræðu sinni eins og sjá má og heyra hér.
Bjarni Hafþór frá Grafarbakka var í toppformi og fór á kostum í sögum af sínu fólki og gestir kunnu gott að meta.
Eins og td. Berglind sem hreinlega grét úr hlátri...
...og Kobbi Hjaltalín og Peddi sem hlógu dátt eins og ...
...Stína mamma Gunna Jó og Gunnu Stínu.
Hér að neðan má heyra eina góða sögu hjá Bjarna Hafþór en fleiri myndir og myndbönd koma síðar.