Fiskeldisskólinn á Húsavík

Fiskeldisskóli unga fólksins fór fram í síðustu viku á Húsavík í tengslum við vinnuskólann fyrir krakka í 8. og 9. bekk.

Fiskeldisskólinn á Húsavík
Almennt - - Lestrar 44

Fiskeldisskóli unga fólksins fór fram í síðustu viku á Húsavík í tengslum við vinnuskólann fyrir krakka í 8. og 9. bekk.
 
Markmið skólans er að kynna sjávarútveg fyrir nemendum og lögð áhersla á fiskeldi enda mikið fiskeldi í sveitarfélaginu. Kennt var frá mánudegi til fimmtudags fyrir hádegi, boðið var upp á fyrirlestra og farið í heimsóknir í Norðursiglingu, Rifós og Silfurstjörnuna.
 
Sjávarútvegsskólinn hefur verið um allt land í nokkur ár en kennt er á Austfjörðum, Ísafirði, Sauðárkróki, Snæfellsnesi, Reykjavík og Höfn í Hornafirði.
 
Fiskeldisskólinn er svo á Húsavík og í Þorlákshöfn og eru kennarar sjávarútvegsfræðingar.

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744