12. feb
Vilja stofna félag sem gætir hagsmuna íbúa og landeigendaAðsent efni - - Lestrar 796
Áhugafólk um silunganetaveiði við Tjörnes og Húsavík hittust í dag 12. feb. 2012 í Sólvangi á Tjörnesi, á fundinn mættu 25 manns.
Vilji fundarmanna er stofnun félags sem gætir hagsmuna íbúa og landeigenda Húsavíkur og Tjörneshrepps um silunganetaveiðar í sjó á þessu svæði.
Kosin var undirbúningsnefnd: Aðalsteinn J. Halldórsson, Katý Bjarnadóttir og Þorkell Lindberg Þórarinsson.