Elvar Baldvins kominn heim í Völsung

Elvar Baldvinsson skrifaði í dag undir samning við Völsung en hann hefur tvö síðustu tímabil leikið með Vestra.

Elvar Baldvins kominn heim í Völsung
Íþróttir - - Lestrar 140

Ingvar Björn og Elvar takast í hendur.
Ingvar Björn og Elvar takast í hendur.

Elvar Baldvinsson skrifaði í dag undir samning við Völsung en hann hefur tvö síðustu tímabil leikið með Vestra.

Í fésbókarsíðu Græna hersins segir:
 
Nýársbomba knattspyrnudeildar hefur verið sprengd og lýsir sem þúsund gylltar sólir. Einn af okkar traustustu sonum, Elvar Baldvinsson frá Hamraborg, er kominn heim í Völsung!
 
Elvar þarf vart að kynna en við gerum það samt - 27 ára gamalt kamelljón sem á að baki 155 deildar- og bikarleiki fyrir Völsung og 34 mörk! 28 deildar- og bikarleikir fyrir Þór í Lengjudeildinni en síðustu tvö tímabil hefur hann spilað með Vestra, 44 leiki í deild og bikar og þar af 19 leiki Í Bestu deildinni á nýliðnu tímabili.
 
Hann mun færa okkur gæði, reynslu og yfirvegun!

Það er með gríðarmikilli spennu sem við bjóðum Elvar velkominn heim í Völsung í Lengjudeildarbaráttuna og væntum við mikils af honum. Knattspyrnudeild nýtir tækifærið og þakkar kærlega fyrir frábært ár 2024 en við stefnum á að toppa okkur 2025!

Gleðilegt nýtt ár Völsungar nær og fjær!

Ljósmynd Hafþór

Ingvar Björn Guðlaugsson og Elvar Baldvinsson takast í hendur að lokinni undirskrift í dag.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744