05. okt
Elín Edda Árnadóttir sýnir í SafnahúsinuFréttatilkynning - - Lestrar 113
Listakonan Elín Edda Árnadóttir opnar sýningu í Safnahúsinu á laugardaginn kemur.
Faglega unnin kolaverk, þar sem hvalskíði eru í fyrirrúmi, munu prýða Myndlistarsalinn á 3. hæð.
Fyrir unnendur góðrar hönnunar verða hinsvegar mögnuðu töskurnar hennar BÚKOLLA eða MOO til sýnis í anddyri safnsins.
Um er að ræða alveg einstaka endurnýtingu, en Elín Edda vinnur þær úr sútuðum kýrjúgrum – sjón er sögu ríkari!
FJÖLMENNUM Á SÝNINGAROPNUN Í SAFNAHÚSINU
LAUGARDAGINN 7. OKTÓBER KL. 14
Léttar veitingar í boði