19. apr
Ekkert smit á GrænuvöllumAlmennt - - Lestrar 143
Niðurstaða sýnatöku vegna hugsanlegs Covid-19 smits á leikskólanum Grænuvöllum barst undir kvöld og var hún neikvæð.
Vikublaðið greindi frá þessu á vef sínum en þar kom fram að foreldar barna á Grænuvöllum hefðu fengið tölvupóst þess efnis og að leikskólinn verði opin venju samkvæmt á morgun.
Áfram verður unnið með sóttvarnahólf í leikskólanum og umgangur milli deilda takmarkaður.