Demantshringurinn opnaður formlega nk. laugardag

Laugardaginn næsta, þann 22. ágúst, verður Demantshringurinn formlega opnaður.

Demantshringurinn opnaður formlega nk. laugardag
Fréttatilkynning - - Lestrar 257

Dettifoss.
Dettifoss.

Laugardaginn næsta, þann 22. ágúst, verður Demantshringurinn formlega opnaður.

Klippt verður á borða með táknrænum hætti við áningarstað sem er við veginn mitt á milli Vesturdals og Dettifoss, en staðsetningu má sjá hér í hlekk að neðan.

Forsætisráðherra, samgönguráðherra og ferðamálaráðherra hafa allir boðað komu sínu og taka þátt í opnuninni.

Nánari dagskrá má sjá hér að neðan, en nauðsynlegt er að skrá sig svo hægt sé að halda  utan um fjölda þeirra sem sækja viðburðinn, enda auðvitað aðeins leyfilegt að 100 manns komi saman.

Skráning fer fram hér: https://www.northiceland.is/is/markadsstofan/frettir-af-innra-starfi/opnun-demantshringsins

Hér eru upplýsingar um staðsetningu: https://goo.gl/maps/n541zWxHZS1bvtwf9

Dagskrá:
13:00 Opnun – Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri MN.
13:05 Ávarp – Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
13:15 Klipping á borða, Katrín, Sigurður Ingi, Þórdís Kolbrún
13:20 Sigurður Ingi Jóhannsson – samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
13:30 Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir – ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
13:40 Kristján Þór Magnússon – Sveitarstjóri Norðurþings

Formlegri dagskrá lýkur kl.14:00 og verður allt haldið utandyra. Boðið verður uppá léttar veitingar.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744