Dagmálalág snjólaus síðdegis 26 júní þetta áriðAðsent efni - - Lestrar 731
Eftir glaðasólskin og hlýindi síðustu daga gaf Fönnin í Dagmálaláginni verulega eftir og var að fullu horfin síðdegis þann 26. júní 2012.
Var það staðfest endanlega um kvöldið með vísindaferð upp á topp, en fyrir miðnætti læddist þoka yfir Húsavíkurfjallið og er enn nú í morgunsárið þannig að ástæða er að koma þessum tíðindum á framfæri til að þeir fyrir neðann Bakkann geti hafi róðra samkvæmt hefð !
Dagmálalágin varð sem sagt snjólaus þetta árið síðdegis þriðjudaginn 26. júní 2012.
Að venju var spáð um atburðinn í aprílmánuði á kaffistofunni á 3.hæðinni í Kaupfélagshúsinu eins og skráðar heimildir eru til um s.l. 37 ár, spámenn voru um 30 og á þeim tíma voru skoðanir manna mjög misvísandi og spár allt frá 17.júní og fram í fyrstu viku ágúst.
Nú þegar Fönnin hvarf stóðu enn eftir yfir 20 spámenn sem voru nokkuð svartsýnir í apríl, en spámaður ársins var Hjálmar Ingimarsson, kaupmaður í Tákn, sem spáði að fönnin yrði öll 26.júní 2012
Gleðilegt sumar og ósk um gott fiskirí á Skjálfanda í sumar.
Egill Olgeirsson.
Hér gefur að líta stöplarit sem sýnir hvenær snjór hefur farið úr Dagmálalág allt frá árinu 1976. Með því að smella á myndina má stækka hana.