Búið að aflétta rýmingu í Út-Kinn

Búið er að aflétta rýmingu í Útkinn í Þingeyjarsveit og er íbúum því heimilt að halda heim til sín á ný.

Búið að aflétta rýmingu í Út-Kinn
Almennt - - Lestrar 103

Mynd frá því i gærmorgun.
Mynd frá því i gærmorgun.

Búið er að aflétta rýmingu í Útkinn í Þingeyjarsveit og er íbúum því heimilt að halda heim til sín á ný.

Í tilkynningu á vef Almannavarna segir að sérfræðingar Veðurstofu hafi skoðað aðstæður á svæðinu í dag og ljóst að verulega hefur dregið úr skriðuhættu. 

Vegurinn um Útkinn er þó enn lokaður fyrir almennri umferð enda hætta á að blautur jarðvegur renni inn á veginn. 

Íbúum er ráðlagt frá því að fara um veginn í myrkri og munu fá fylgd björgunarsveita heim til sín kjósi þeir að snúa til sín heima í kvöld.

Hættustig er enn í gildi á svæðinu en skilgreining þess er að heilsu og öryggi manna, umhverfis eða byggðar er ógnað af náttúru- eða mannavöldum þó ekki svo alvarlegar að um neyðarástand sé að ræða.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744