05. apr
Brynja og Marta Sóley valdar á úrtaksæfingar U15Íþróttir - - Lestrar 743
Þorlákur Árnason, landsliðsþjálfari U15 kvenna, hefur valið hóp fyrir úrtaksæfingar U15 kvenna sem fara fram dagana 13. og 14. apríl næstkomandi.
Æfingarnar fara fram á Eimskipsvellinum í Laugardal, en um er að ræða leikmenn fædda 2003.
Tveir Völsungar eru á meðal leikmanna í hópnum, þær Brynja Baldvinsdóttir og Marta Sóley Sigmarsdóttir.