Brennum aflýst í NorðurþingiFréttatilkynning - - Lestrar 230
Í ljósi hertra samkomutak-markanna verður ekki hægt að halda fyrirhugaðar brennur í Norðurþingi og því er þeim aflýst.
Flugeldasýningar munu fara fram enda ekki þörf á að fólk safnist safnist saman til að njóta þeirra.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi mun standa fyrir flugeldasýningu á Húsavík á Gamlársdag kl. 17:30, skotið upp frá Skeiðavelli.
Björgunarsveitin Núpar mun standa fyrir flugeldasýningu á Kópaskeri á Gamlársdag kl. 20:30
Auk þess verður flugeldasýning á Húsavík á þrettándanum klukkan 18:00
"Við vonum að allir njóti hátíðanna sem nú ganga í garð. Á sama tíma biðjum við íbúa og aðra að fara varlega og virða þær sóttvarnarreglur sem nú gilda" segir á heimasíðu Norðurþings..