17. maí
Brennið þið vitarAlmennt - - Lestrar 111
Ásdís Sif Gunnarsdóttir fæst við myndbanda- og gjörningalist þar sem hún bregður sér í ólík hlutverk dulspárra
vera. Með hjálp nýjustu tækni endurvekur hún fornar goðsagnir og ræður áhorfendum heilt. Sem dæmi bauð hún fólki
á tímabili að slá á þráðinn til sín á Skype og flutti þeim persónulegan gjörning undir heitinu "Performance Call
Girl". Hún sýnir í hinum ferstrenda og glæsilega vita sem stendur á sléttunni við Kópasker í Öxarfirði.
Ásdís Sif er fædd 1976 og hún nam myndlist bæði í New York og í Los Angeles. Hún var einn leikstjóra kvikmyndarinnar "Háveruleiki" sem frumsýnd var á síðasta ári. Nýlegar sýningar telja "It´s Not Your Fault" í Luhring Augustine galleríinu í New York, "Nuna" listahátíðin í Winnipeg og var hún fyrsti listamaðurinn til að sýna í hinu nýja Gallerí Ágúst á Nönnugötu árið 2007.
Frekari upplýsingar um Ásdísi má finna á heimasíðu hennar http://www.asdissifgunnarsdottir.com/
Opnunartímar á sýningunni í Kópaskersvita verða sem hér segir:
17. - 31. maí daglega (utan mánudaga) kl. 13:00 - 18:00
1. júní - 2. ágúst, fimmtudaga - sunnudga kl. 13:00 - 18:00