Botnsvatnshlaup á Mærudögum

Botnsvatnshlaupið verður haldið fimmtudaginn 26. júlí 2012 kl. 20:00 og hefst við Botnsvatn, rétt ofan við Húsavík og lýkur í Skrúðgarðinum á Húsavík.

Botnsvatnshlaup á Mærudögum
Almennt - - Lestrar 467

Botnsvatnshlaupið verður haldið fimmtudaginn 26. júlí 2012 kl. 20:00 og hefst við Botnsvatn, rétt ofan við Húsavík og lýkur í Skrúðgarðinum á Húsavík.

Botnsvatn og tengdur Skrúðgarður er afar fallegt svæði, sem fáir hafa kynnst og notið.

Val er um að hlaupa umhverfis Botnsvatn og síðan niður með Búðará og í Skrúðgarðinn, samtals 7,6 km. eða fara einungis niður stíginn í Skrúðgarðinn sem eru 2,6 km. Tímataka verður í hlaupinu.

Hlaup, jogg eða ganga við allra hæfi, í fallegu umhverfi.

Skráning í botnsvatnshlaup@gmail.com eða á staðnum frá kl. 19:15.

Að sjálfsögðu er þátttaka ókeypis.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744