Bókun bæjarráðs varðandi Dvalarheimli aldraðra á HúsavíkAðsent efni - - Lestrar 639
Á fundi bæjarráðs Norðurþings í gær var fjallað um málefni
Dvalaheimilisins aldraðra á Húsavík. Eftirfarandi var bókað á fundinum:
Í erindi frá Félags- og tryggingarráðuneytinu dagsett 15. desember 2008 er það staðfest að ráðuneytið hafi unnið ítarlega þarfagreiningu fyrir hjúkrunarrými á landsvísu og var sú greining lögð til grundvallar við fjölgun hjúkrunarrýma.
Þar er staðfest þörf á fjölgun hjúkrunarrýma á því svæði sem Hvammur –
heimili aldraðra hefur sinnt.
Síðan þá eru liðin rúm tvö ár og þrátt
fyrir ítrekaðar beiðnir um leiðréttingu mála m.t.t. þeirrar þjónustu sem Hvammur veitir var það fyrst nú sem
hjúkrunarrýmum var fjölgað á kostnað dvalarrýma. Sveitarfélögin Norðurþing, Skútustaðahreppur, Þingeyjarsveit og
Tjörneshreppur, hafa á þessum tíma þurft að fjármagna þann aukakostnað sem til hefur fallið á þeim málaflokki sem
ríkisvaldið ber ábyrgð á. Kostnaður vegna þessa nemur tugum milljóna króna. Krafa sveitarfélaganna um eðlilega og sanngjarna
leiðréttingu hefur nú verið hafnað af ráðuneyti velferðarmála þrátt fyrir þá ábyrgð sem ráðneytið
hefur á málaflokknum.
Bæjarráð Norðurþings harmar þessa niðurstöðu sem er með öllu óásættanleg og því miður er ekki hægt að skilja afstöðu ráðuneytis velferðamála á annan hátt en að ríkisstjórnin sé ekki tilbúinn til að axla ábyrgð á viðurkenndri þörf.