Bogi aðeins í gangi næstu vikurnarAlmennt - - Lestrar 289
Næstu vikur verður aðeins kveikt á ofninum Boga í verksmiðju PCC á Bakka þar sem rykhreinsivirki hennar annar ekki framleiðslu frá tveimur ofnum á fullu afli.
Því þarf að ráðast í umbótavinnu og endurskipulagningu í reykhreinsivirkinu og hefst sú vinna strax.
Þetta kemur fram á Fésbókarsíðu verksmiðjunnar en þar segir:
Mikið hefur gengið á hjá PCC BakkiSilicon í vetur en framleiðsla hefur ekki verið eftir væntingum. Kuldi og snjómagn var að stríða okkur yfir háveturinn sem hafði mikil áhrif á hráefnin sem hafði keðjuverkandi áhrif alla leið í rykhreinsivirkið. Talið var að með hækkandi sól myndu stíflur í rykhreinsivirki hætta að myndast.
Í síðustu viku voru báðir ofnar komnir í gang og útlitið var gott. Eftir nokkurra daga rekstur á báðum ofnum þar sem báðir voru farnir að skila af sér góðum málmi og orðnir stöðugir þá stíflaðist rykhreinsivirkið aftur og slökkva þurfti á ofnum svo vinna gæti farið þar fram.
Nú er orðið ljóst að rykhreinsivirkið annar ekki framleiðslu frá tveimur ofnum á fullu afli. Það er því nauðsynlegt að ráðast í umbótavinnu og endurskipulagningu í rykhreinsivirkinu og hefst sú vinna strax. Vegna þessa hefur verið tekin sú ákvörðun að næstu vikur verður einungis kveikt á Boga.
Þetta er gert með von um að ná stöðugri framleiðslu í lengri tíma. Á meðan fær Birta yfirhalningu svo ofninn verði tilbúinn til að fara í gang um leið og hægt er.