17. des
Bjarki Sveinsson valinn í æfingahóp karlalandsliðsins í blakiÍþróttir - - Lestrar 234
Húsvíkingurinn Bjarki Sveinsson, leikmaður Aftureldingar í blaki, hefur verið valinn í 18 manna æfingahóp karlalandsliðsins.
Hópurinn var valinn fyrir næsta landsliðsverkefni en liðið fer á NOVOTEL Cup í Luxemborg fyrstu helgina á nýju ári.
Eins og áður segir eru 18 leikmenn í hópnum sem þjálfaranir Tihomir Paunovski og Egill Þorri Arnarsson völdu en 14 leikmenn fara til Luxemborgar þann 1. janúar
Hópinn má sjá í heild sinni hér en landsliðið kemur saman dagana 27. – 30. desember á æfingum í Fagralundi í Kópavogi.