Atvinnuleysi á niðurleiðAlmennt - - Lestrar 100
Samkvæmt upplýsingum frá Vinnumálastofnun var skráð atvinnuleysi í júlí 6,1% og minnkaði talsvert frá júní þegar það mældist 7,4%, að því er fram kemur í skýrslu Vinnumálastofnunar fyrir júlímánuð.
Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 2.005 sem nemur 14% fækkun frá júnímánuði.
Atvinnuleysi hefur farið minnkandi síðustu mánuði en það var 9,1% í maí, 10,4% í apríl, 11,0% í mars og 11,4% í febrúar 2021.
„Atvinnulausir voru alls 12.537 í lok júlí, 6.562 karlar og 5.975 konur og fækkaði atvinnulausum körlum um 966 frá júnílokum og atvinnulausum konum fækkaði um 813,“
Á Norðurlandi eystra lækkaði atvinnuleysið úr 4,4% í 3,9%. (framsyn.is)
Sjá nánar: https://vinnumalastofnun.is/media/3172/juli-2021-skyrsla.pdf