Áslaug Munda skoraði í fyrsta leik á Norðulandamóti U-17

U-17 landslið kvenna hóf Norðurlandamótið með góðum sigri á Finnlandi, 2-1 sl. föstudag.

Lið Íslands á U17 í Finnlandi. Lj. ksi.is
Lið Íslands á U17 í Finnlandi. Lj. ksi.is

U-17 landslið kvenna hóf Norðurlandamótið með góðum sigri á Finnlandi, 2-1 sl. föstudag.

Völsungurinn Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir kom Íslandi yfir í fyrri hálfleik en Finnar náðu að jafna eftir hlé.

Barbára Sól Gísladóttir skoraði síðan sigurmark Íslands um miðjan seinni hálfleik og þar við sat.

Mótið fer fram í Oulu í Finnlandi og er Ísland í riðli með Finnlandi, Svíþjóð og Frakklandi.

Annar leikur Íslands hófst kl. 11 í dag og eru mótherjarnir Frakklandi. 

Þess má geta að Hildur Þóra Hákonardóttir úr Breiðabliki, dóttir Hákonar Hrafns Sigurðssonar og Þórhöllu Gunnarsdóttur, er einnig í liðinu og er önnur tveggja leimanna sem fá þann heiður að vera fyrirliði liðsins á mótinu.

Síðasti leikur riðilsins er síðan á þriðjudaginn gegn Svíþjóð. Þegar riðlakeppni er lokið er spilað um sæti, en tveir riðlar eru á mótinu. (ksi.is)

Ísland

Ljósmynd KSÍ.


  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744