07. apr
Arna Védís lék sinn fyrsta landsleikÍþróttir - - Lestrar 635
Arna Védís Bjarnadóttir lék sinn fyrsta landsleik í blaki um páskana þegar Ísland tók þátt í æfingamótinu Pasqua Challenge 2018.
Ísland sigraði mótið árið 2017 en í ár var hópurinn skipaður að mestu leiti leikmönnum sem hafa ekki spilað áður fyrir A landsliðið og mætti því kalla hópinn í ár B landslið Íslands.
Arney Kjartansdóttir var einnig í þessari æfingaferð með U16 ára landsliði Íslands.
Það er nokkuð ljóst að blakíþróttin er á uppleið hjá Völsungi og framtíðin björt.