Anna María í 4 sæti á EM í bogfimi í Slóveníu

Anna María Alfreðsdóttir lenti í fjórða sæti á EM í bogfimi í Slóveníu en hún spilaði í dag um bronsið við Ipek Tomruk frá Tyrklandi.

Anna María í 4 sæti á EM í bogfimi í Slóveníu
Íþróttir - - Lestrar 97

Anna María Alfreðsdóttir. Lj. archery.is
Anna María Alfreðsdóttir. Lj. archery.is

Anna María Alfreðsdóttir lenti í fjórða sæti á EM í bogfimi í Slóveníu en hún spilaði í dag um bronsið við Ipek Tomruk frá Tyrklandi.

"Leikurinn byrjaði mjög jafn en Anna María byrjaði einu stigi undir í fyrstu umferðinni 28-29.

Stelpurnar jöfnuðu svo næstu umferð báðar með fullkomið skor 30-30 og jöfnuðu svo aftur umferð þrjú 29-29 og staðan var því 87-88 í leiknum og tvær umferðir eftir. Í fjórðu umferð náð sú Tyrkneska að auka forskotið í 3 stig Anna skaut 27 og sú Tyrkenska 29.

Anna átti svo flotta loka umferð 29 en sú Tyrkneska gaf ekki færi á sér og skaut fullkomið skor í síðustu umferðinni 30 og tók brons leikinn 147-143.

Þetta var mjög flott frammistaða hjá Önnu bæði í brons leiknum og á mótinu í heild sinni en svona er þetta þegar verið er að keppa á hæsta stigi minnsti munur er munurinn á sigri eða tapi og dagsformið segir oft meira til um úrslit en getustig" segir í frétt á bogfimivefnum archery.is 

Anna María sló einnig fimm Íslandsmet á EM:

  • Íslandsmet í útsláttarkeppni trissuboga kvenna U21
  • Landsliðs Íslandsmet í undankeppni liða trissuboga kvenna U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna)
  • Landsliðs Íslandsmet útsláttarkeppni liða trissuboga U21 og sama met í Opnum flokki (fullorðinna)

  • Herna

640.is | Ábyrgðarmaður Hafþór Hreiðarsson | vefstjori@640.is | Sími: 895-6744