lyktun sveitarflaganna ingeyjarsslumAsent efni - - Lestrar 395
Sveitarfélögin í Þingeyjarsýslum austan Vaðlaheiðar lýsa yfir miklum og þungum áhyggjum
vegna fyrirhugaðs niðurskurðar á heilbrigðisþjónustu á Norðausturlandi. Sá niðurskurður á fjárveitingum til
Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga, sem kynntur hefur verið í fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár, er ein mesta ógn sem steðjað hefur að
búsetu á þessu svæði um langa hríð og myndi hafa mjög alvarlegar afleiðingar, ekki bara fyrir stofnunina heldur alla íbúa í
Þingeyjarsýslum frá Ljósavatnsskarði í vestri til Þórshafnar í austri.
Krafa um tæplega 40% niðurskurð þýðir stórauknar álögur
á almenning á starfssvæði stofnunarinnar, atvinnumissi fólks í tugatali og myndi draga stórkostlega úr möguleikum sveitarfélaganna til
uppbyggingar á komandi árum. Jafnframt er ljóst að krafa um 85% niðurskurð á sjúkrasviði þýðir í raun lokun á
sjúkrahúsinu. Slíkt á ekkert skylt við eðlilegar sparnaðartillögur.
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga er mikilvægt öryggisnet á stóru
landsvæði þar sem fara þarf um allt að 300 km leið á milli staða. Sveitarfélögin Þingeyjarsveit, Skútustaðahreppur,
Norðurþing, Tjörneshreppur, Svalbarðshreppur og Langanesbyggð skora á ráðherra heilbrigðismála, ráðherra fjármála og
þingmenn Alþingis að falla frá þessari tillögu og leggjast á eitt um að halda áfram rekstri Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga á
forsendum fjárlaga ársins 2010.